Appelsínugul viðvörun í fyrramálið

Í fyrramálið, fimmtudaginn 26.03.2026 milli klukkan 07:00-13:00 er appelsínugul viðvörun á okkar svæði.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan , Almannavarnir og neyðarstjórn Suðurnesjabæjar gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf. 

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Foreldrar/forráðamenn eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla, og fylgja þeim inn í og út úr skólanum til að tryggja öryggi þeirra, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi. 

Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. 

Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin. 

Símanúmer skólans er 425-3100 / Netföng: grunnskoli@sandgerdisskoli.is / ritari@sandgerdisskoli.is