Aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Verðlaunahafar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2022
Verðlaunahafar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2022
Hilda Rún og Thelma Sif nemendur í 7. bekk í Sandgerðisskóla unnu aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með hugmynd sinni um hjálparljós. Af mörg hundruð hugmyndum voru 25 valdar til útfærslu í vinnustofu sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík.
Nýsköpunarkennsla hefur verið stór þáttur af náttúrufræðikennslu 7. bekkjar í vetur í umsjón Ragnheiðar Ölmu Snæbjörnsdóttur.
 
Hjálparljósið virkar þannig að þegar nemanda vantar aðstoð í kennslustund kveikir hann á ljósinu í stað þess að rétta upp hendi. Þannig veit kennarinn hverja vantar aðstoð og nemandinn verður ekki þreyttur í hendinni. Eftir 4 mínútur breytist ljósið úr grænu í gult og svo í rautt eftir aðrar 4 mínútur. Að lokum fer rauða ljósið svo að blikka.
 
Í dag var hátíðlegt tilefni þar sem Ásmundur Einar Daðason skóla-og barnamálaráðherra veitti þeim vegleg verðlaun og verðlaunagrip á lokahófi keppninnar.
 
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk grunnskóla. Keppnin var haldin í fyrsta skipti árið 1992 og hefur verið haldin, óslitið síðan og á keppnin því 30 ára afmæli í ár. Undirbúningur fer fram í skólum landsins samhliða annarri kennslu á skólaárinu þar sem nemendur fá kennslu við að þróa verkefni út frá sínu áhugasviði, allt frá hugmynd til veruleika. Þetta ferli virkjar sköpunarkraft nemenda í lausnamiðuðum hugsunarhætti og eykur sjálfstraust þeirra og frumkvæði.
 
Gaman er að segja frá því að annað árið í röð hljóta nemendur Sandgerðisskóla aðalverðlaun keppninnar.
 
Við óskum Hildu Rún og Thelmu Sif innilega til hamingju með sigurinn.