Páskaleyfi

Föstudagurinn 22. mars er tilbreytingadagur í skólanum og að loknum hádegisverði halda nemendur heim eða á Skólasel/Skýið sem opnar fyrr þennan dag. Jafnframt er þetta síðasti skóladagur nemenda fyrir hefðbundið páskaleyfi.

Skólahald hefst að nýju samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 3. apríl.

Við óskum ykkur gleðilegrar páskahátíðar.
Starfsfólk Sandgerðisskóla