Lestraramma

Magga lestraramma
Magga lestraramma

Sandgerðisskóli hefur verið þess heiður aðnjótandi í mörg ár að lestrarömmur hafa komið í skólann til að aðstoða nemendur við lestur í sjálfboðastarfi. Margrét Böðvarsdóttir eða Magga lestraramma eins og nemendur þekkja hana hefur m.a. sinnt þessu hlutverki hjá okkur í undanfarinn ár.  Nú ætlar Magga að draga sig í hlé frá lestrarömmu hlutverkinu og vilja nemendur og starfsfólk þakka henni kærlega fyrir hennar óeigingjarna starf og óskar henni velfarnaðar.