Samskiptadagur

Miðvikudaginn 10. febrúar nk. verður samskiptadagur í Sandgerðisskóla, samtölin verða tekin í síma eða í fundarforritum í gegn um tölvu. Markmið með samskiptadegi er m.a að foreldrar, nemandi og kennari ræði saman um náms- og félagslega stöðu nemandans og að tekin sé sameiginleg ákvörðun um næstu markmið hans.

Tímabókanir eru með rafrænum hætti í gegnum Mentor kerfið. Við biðjum ykkur því um að fara inn á www.infomentor.is og bóka ykkar viðtalstíma þar.

Hægt er að byrja að skrá sig í símaviðtal þriðjudaginn 2. febrúar kl. 15:00
Lokadagur skráningar er kl.12:00,mánudaginn 8. febrúar.

Þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum eru hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst, eftir að skráning hefst til að fá viðtalstíma í röð hjá mismunandi kennurum. Ykkur er bent á að hafa samband við umsjónarkennara ef þess þarf.