Sandgerðisskóli er hnetulaus skóli

Í Sandgerðisskóla eru nokkrir nemendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum. Mikilvægt er að við öll tökum tillit til þeirra þar sem hnetur geta valdið hættulegum ofnæmisviðbrögðum. Sandgerðisskóli er hnetulaus skóli og má því enginn koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira.